Testo Sonnetta - Bubbi Morthens
Testo della canzone Sonnetta (Bubbi Morthens), tratta dall'album Sögur af ást, landi og þjóð 1980-2010
Æ ljúfast var að vaka ástin mín
Vetrarnætur dimmar við brjóstin þín.
Þegar kalt er í veðri og vindurinn hvín
þá vekur fölur máninn börnin sín.
Hversu ljúft var að hlæja og gera grín
grafa sig undir þitt hvíta lín.
Og opna þitt heita hjartaskrín
hverfa loks þangað sem ástin skín.
Í húminu svala ég ligg og læt mig dreyma
leyfi sorginni að vaka í mínu hjarta
og sakna hlýju þinna handa.
Og fyrri tíðar myndir í myrkrinu svarta
magnast hverju sinni er ég anda.
Ég er orðinn of gamall til að gleyma
Credits
Writer(s): Bubbi Morthens
Lyrics powered by www.musixmatch.com
Link
Disclaimer:
i testi sono forniti da Musixmatch.
Per richieste di variazioni o rimozioni è possibile contattare
direttamente Musixmatch nel caso tu sia
un artista o
un publisher.