Testo Fjöllin hafa vakað - Egó
Testo della canzone Fjöllin hafa vakað (Egó), tratta dall'album 100 íslensk 80's lög
Fjöllin hafa vakað
í þúsund ár.
Ef þú rýnir inn í bergið
sérðu glitra tár.
Orð þín kristal tær
drógu mig nær og nær.
Ég reyndi að kalla á ástina
sem úr dvala reis í gær.
Þú sagðir mér frá skrýtnu landi
fyrir okkur ein.
Þar yxu rósir á hvítum sandi
og von um betri heim.
Ég hló, þú horfðir á
augu þín svört af þrá.
Ég teygði mig í himininn
í tunglið reyndi að ná.
Sá er talinn heimskur
sem opnar sína sál.
Ef hann kann ekki að ljúga
hvað verður um hann þá.
Undir hælinn verður troðinn
líkt og laufblöðin smá.
Við hræðumst hjarta hans
og augun blá.
Credits
Writer(s): Asbjoern Morthens, Bergthor Morthens, Magnus Stefansson, Thorleifur Gudjonsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com
Link
Disclaimer:
i testi sono forniti da Musixmatch.
Per richieste di variazioni o rimozioni è possibile contattare
direttamente Musixmatch nel caso tu sia
un artista o
un publisher.