Testo Dögun - Bubbi Morthens
Testo della canzone Dögun (Bubbi Morthens), tratta dall'album Dögun (Sérútgáfa)
Ef dagurinn í dag væri lagður
með draumum sínum frá í gær.
Sem fórn í þinn faðm og sagður
færa það ókomna nær.
Ef ástin og sorgin eru systur
sem sverja þér tryggð og lofa.
Á krossinum vísast verðurðu kysstur
ef þú vakir meðan aðrir sofa.
Þitt nafn þekur eina ævi
endalaust, það merkir ekki neitt.
Svar mitt glaður ég gæfi
gæti ég einhverju breytt.
Þín móðir fann sér félaga við hafið
og í fangi hans öruggan heim.
Því æsku sína í sandinn hafði grafið
sína tungu og slavneska hreim.
Þegar skuggarnir í dögun dansa
og dagurinn kemst ekki inn.
Þá flétta gamlar konur kransa
á kumblið gráta í annað sinn.
Þitt nafn þekur eina ævi
endalaust, það merkir ekki neitt.
Svar mitt glaður ég gæfi
gæti ég einhverju breytt.
Credits
Writer(s): Bubbi Morthens
Lyrics powered by www.musixmatch.com
Link
Disclaimer:
i testi sono forniti da Musixmatch.
Per richieste di variazioni o rimozioni è possibile contattare
direttamente Musixmatch nel caso tu sia
un artista o
un publisher.