Testo Borgin mín - Bubbi Morthens
Testo della canzone Borgin mín (Bubbi Morthens), tratta dall'album Dögun (Sérútgáfa)
Borgin mín rislága Reykja - heitir - vík
reyndar er hún örverpi, nánast orðin frík.
Geymir styttur fagrar af feðrum þessa lands
fram á helgar alla daga stiginn er þar dans.
Börnin hennar þræla þjökuð fram á kvöld
þau leggja allt í sölurnar fyrir auð og völd.
Það lánast aðeins fáum að fæðast inn í ætt
sem falast eftir hersetu svo auðsins verði gætt.
Bankar verða gjaldþrota, gjöldin borgar þú
gjöful er jú réttvísin en aldrei meir en nú.
Þó ráðherrum leyfist lögin títt að brjóta
er litlum körlum engin sæmd um slíka hluti að hnjóta.
Félagsráð og skrifstofur voldugum valda penna
á vörum þeirra spurningar alla daga brenna.
Hvort borgin ali dílera og dópið kaupi börn
sem dunda sér í vímunni að moka í Gróttu kvörn?
Credits
Writer(s): Bubbi Morthens
Lyrics powered by www.musixmatch.com
Link
Disclaimer:
i testi sono forniti da Musixmatch.
Per richieste di variazioni o rimozioni è possibile contattare
direttamente Musixmatch nel caso tu sia
un artista o
un publisher.