Testo Snefill - Moses Hightower
Testo della canzone Snefill (Moses Hightower), tratta dall'album Snefill
Blika stjörnur, bast og tvist.
Urtubarn í útskersvist
er að lognast útaf,
og ég hafa það vil sem það hefur,
því það er, eins og er,
ekki snefill af mér
sem að sefur.
Þér, sem einnig liggur hér,
vinnst létt að sofa;
áir sátt í örmum mér
ásamt náladofa.
Ég er bit yfir því
hve þú talblöðruna í
getur
teiknað zetur!
Og ég hafa það vil sem þú hefur,
því það er, eins og er,
ekki snefill af mér
sem að sefur.
Já, ég hafa það vil sem þú hefur.
Að ég einn og aukreitis
norpi í vökuheimi
þýðir ekki aldeilis
að mig ekki dreymi.
Nei, ég hafa það vil sem þú hefur,
því það er, eins og er,
ekki snefill af mér sem að sefur.
Credits
Writer(s): Magnus Trygvason Eliassen, Andri ólafsson, Steingrímur Karl Teague, Daniel Fridrik Bodvarsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com
Link
Disclaimer:
i testi sono forniti da Musixmatch.
Per richieste di variazioni o rimozioni è possibile contattare
direttamente Musixmatch nel caso tu sia
un artista o
un publisher.