Testo Sama er mér - Trúbrot
Testo della canzone Sama er mér (Trúbrot), tratta dall'album Trúbrot
Í hrjáðum heimi
af hatri' og eymd,
ýmsu með andstreymi,
oft ást er gleymd.
Og bræður berjast
af bræði' og heift.
Vanmáttugir verjast,
vopn eru keypt.
En sama' er mér
og sama' er þér,
sú ábyrgð ber,
sem stærstur er.
Í sorg oft fæðast
mörg saklaus börn.
Fæðast til að hræðast,
sér eiga' ei vörn.
En sama' er mér
og sama' er þér,
sú ábyrgð ber,
sem stærstur er.
Og í okkar litla landi
líka skeður margt,
sem að lendir líka í strandi,
útlitið er svart,
en ekki bjart.
Sér stundarótta
fólk býr sér til.
Leggur bara' á flótta
við veðraskil.
Hvers vegna, vinur,
er sjón þín sljó?
Lífið getur gefið
þér hugarró.
En sama' er mér
og sama' er þér,
oft illa fer,
ef sama' er þér.
Og í okkar litla landi
líka skeður margt,
sem að lendir líka í strandi,
útlitið er svart,
en ekki bjart.
Credits
Writer(s): Gunnar Thordarson, Thorsteinn Eggertsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com
Link
Disclaimer:
i testi sono forniti da Musixmatch.
Per richieste di variazioni o rimozioni è possibile contattare
direttamente Musixmatch nel caso tu sia
un artista o
un publisher.