Testo Öldurótið - Ásgeir
Testo della canzone Öldurótið (Ásgeir), tratta dall'album Öldurótið
Um holótta grýtta götu
Þú gengur með staf þér í hönd
Og sérð það er bátur að berjast
Við brimið nærri strönd
Þú sérð það er bátur að berjast
Sú barátta fer ekki vel
Þar velkist í válegu róti
Lítil, veikbyggð skel
Nú hanga skýin henglum í
Hafið vekur þungan gný
Og himinninn er grár í dag
Þér þykir svo vont að vita
Af vinum í sárri neyð
Og geta ekki veitt þeim vonir
Og vísað færa leið
En líta skal lengur á málin
Og ljóst virðist mér það nú
Að brimið er barningur lífsins
Og báturinn hann er þú
Nú hanga skýin henglum í
Hafið vekur þungan gný
Og himinninn er grár í dag
Nú hanga skýin henglum í
Hafið vekur þungan gný
Og himinninn er grár í dag
Credits
Writer(s): Einar Georg Einarsson, Asgeir Trausti Einarsson
Lyrics powered by www.musixmatch.com
Link
Disclaimer:
i testi sono forniti da Musixmatch.
Per richieste di variazioni o rimozioni è possibile contattare
direttamente Musixmatch nel caso tu sia
un artista o
un publisher.