Testo Drepa þunglyndið - Bubbi Morthens
Testo della canzone Drepa þunglyndið (Bubbi Morthens), tratta dall'album Ljós og skuggar
Ljósið klæðist svörtu
Sólin bakvið ský
Þú selur útrunna drauma
Og drekkur bráðið blý
Þig dreymir bara í vöku
Dagurinn er blár
Einhverntíma fæddist þú
En enginn veit hvaða ár
Kvíðinn er að kæfa þig
Þú kaupir eina bláa
Og eina litla hvíta
Til að díla við allt þetta smáa
Að ösla dauðamyrkur
Og drepa þunglyndið
Hafa sig á fætur
Horfa ekki á bindið
Ef dagurinn er draugur
Eru þín augun grá
Eina leiðin útí frelsið
Þú ættir þangað að ná
Kvíðinn er að kæfa þig
Þú kaupir eina bláa
Og eina litla hvíta
Til að díla við allt þetta smáa
Sólin sýnir andlitið
Sest útá grasið
Þú heilsar henni kátur
Hlæjandi þið masið
Um drauma og betri daga
Dofinn ert samt og sár
Þú veist handan við hornið
Húkir blúsinn dökkur og blár
Credits
Writer(s):
Lyrics powered by www.musixmatch.com
Link
Disclaimer:
i testi sono forniti da Musixmatch.
Per richieste di variazioni o rimozioni è possibile contattare
direttamente Musixmatch nel caso tu sia
un artista o
un publisher.